Bygg
Bygg

Mannlíf

Mættust á miðri leið
Miðvikudagur 30. ágúst 2006 kl. 12:43

Mættust á miðri leið

Beinhákarlar hafa herjað á Faxaflóann síðustu vikurnar og nú síðast í morgun náði blaðamaður Víkurfrétta mynd af tveimur beinhákörlum sem mættust í fæðuöflun.

Uggar hákarla eru tilkomumikil sjón enda annálaðar veiðivélar í sjónum. Svo er þó ekki farið með beinhákarlana sem lifa á svifdýrum í yfirborði sjávar.

Beinhákarlarnir hafa ekki einungis haldið sig við Faxaflóann og Stakksfjörðinn. Sést hefur til þeirra í Reykjavíkurhöfn og víðar.

Beinhákarlinn var afar dýrmætur áður fyrr vegna olíunnar sem gríðarstór lifrin gaf af sér og einnig vegna kjötsins og ugganna sem eru rándýr matvara á asískum matvörumarkaði. Hálft kíló af þurrkuðum hákarlaugga selst fyrir 350 bandaríkjadali.

 

[email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn