Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Lyktin í búningsklefanum rétt fyrir leik í fótboltanum er sérstök
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 13. júní 2020 kl. 09:15

Lyktin í búningsklefanum rétt fyrir leik í fótboltanum er sérstök

Falur Helgi Daðason gæti ekki bjargað lífi sínu með hljóðfæraleik. Hann sér ekki fyrir sér útilegur, segist vera meiri hótelmaður. Spurður hvar hann slaki á stendur ekki á svarinu: „Í góðu fríi á sólarströnd með fjölskyldunni er besta slökunin. Einnig er góð slökun að fara út að hlaupa og hjóla, þannig hleður maður batteríin vel.“
Falur er í Netspjalli við Víkurfréttir í þessari viku.

– Nafn:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Falur Helgi Daðason.

– Árgangur:

1974.

– Fjölskylduhagir:

Ég er giftur, fjögurra barna faðir; tólf ára drengur og fimmtán, sautján og 22 ára stúlkur.

– Búseta:

Bý í Sunny Kef.

– Hverra manna ertu og hvar upp alin?

Er sonur Daða Þorgrímssonar, sveitamanns úr Kelduhverfi í Öxarfirði, og Jóhönnu Birnu Falsdóttur, Keflvíkings. Ég fæddist í Keflavík og hef búið hér alla mína tíð.

– Starf/nám:

Ég er sjúkraþjálfari og rek, ásamt Björgu Hafsteins og mökum okkar, Sjúkraþjálfun Suðurnesja og hef gert í tuttugu ár. Ég er með Bs gráðu frá Háskóla Íslands.

– Hvað er í deiglunni?

Það er alla vega ekki að fara í útilegur í sumar, ég er meira svona hótelmaður. Annars er það helst á döfinni í dag að halda áfram að hugsa vel um fjölskylduna mína og fyrirtækið og rækta það eins vel og hægt er.

– Hvernig nemandi varstu í grunnskóla?

Ég var ágætur nemandi, krefjandi, orkumikill og nokkuð góður í leikfimi. Held bara fínn drengur.

– Hvernig voru framhaldsskólaárin?

Ég stundaði nám við FS og voru þetta góð ár enda kynntist maður mörgu fólki á þessum árum sem urðu vinir til lífstíðar og að sjálfsögðu kynntist ég Elínu minni þarna þannig að það er ekki annað hægt að segja en þetta hafi verið góð ár.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Ég man ekki eftir neinu sérstöku en ætli ég hafi ekki haft þann draum að verða atvinnumaður í fótbolta, hef reyndar atvinnu að einhverju leyti af fótbolta í dag :-)

– Hver var fyrsti bíllinn þinn?

Toyota Corolla, standard týpa með vínilsætum, geggjaður bíll.

– Hvernig bíl ertu á í dag?

Toyota Landcruiser og Kia Stonic.

– Hver er draumabíllinn?

Volvo xc90 eru geggjaðir bílar, á eftir að fá mér svoleiðis bíl þegar ég verð stór.

– Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki?

Ætli það hafi ekki verið fótboltinn.

– Besti ilmur sem þú finnur:

Það er svolítið skrýtið en lyktin inní búningsklefanum rétt fyrir leik í fótboltanum er sérstök, kannski ekki besti ilmur ef við getum kallað hann ilm en tilfinningin af spennu fyrir leiknum gerir ilminn góðan.

– Hvernig slakarðu á?

Í góðu fríi á sólarströnd með fjölskyldunni er besta slökunin. Einnig er góð slökun að fara út að hlaupa og hjóla, þannig hleður maður batteríin vel.

– Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. sautján ára?

Það er auðvelt, U2, besta hljómsveit allra tíma :-)

– Uppáhaldstónlistartímabil?

Ég er alæta á tónlist, hlusta á flestar tegundir tónlistar þannig að það tímabil sem maður er í er líklega það besta.

– Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana?

Nýjasta platan hans Ásgeirs, Satt, er geggjuð.

– Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili?

Þegar ég bjó hjá mömmu og pabba á Heiðarhorninu þá var Villi Vill oftast spilaður og er oftast spilaður enn í dag.

– Leikurðu á hljóðfæri?

Nei, gæti ekki bjargað lífi mínu með hljóðfæraleik.

– Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig?

Ég horfi mikið á sjónvarp, helst horfi ég á þætti á Netflix, Stöð 2 og RÚV en aðalsjónvarpsefnið mitt er þó íþróttir, þar horfi ég á allt sem ég kemst í tæri við og fæ að hafa sjónvarpið í friði.

– Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu?

Leikjum með Liverpool, það er ótrúlega margt sem ég er tilbúinn að fórna til að geta horft á leik með mínum mönnum.

– Besta kvikmyndin:

Shawshank Redemption er geggjuð mynd.

– Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur?

Ég les alveg rosalega lítið, líklega er uppáhaldsrithöfundurinn minn Arnaldur Indriðason þar sem ég hef ekki lesið bækur eftir neinn annan og besta bókin er Betty. Reyndar las ég bókina um Klopp líka en það er annað mál.

– Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili?

Ég vil meina að ég geri allt betur en allir hér á mínu heimili, ég kann að skera ost rétt, skera appelsínurnar rétt, sný klósettrúllunni líka rétt en það virðist vera mjög erfitt að ná því hvernig þær eigi að snúa. Svo vinn ég yfirleitt í öllum íþróttum.

– Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?

Nautalund, verður að vera Medium Rear, þar er ég algjör meistari.

– Hvernig er eggið best?

Over Easy egg eru best.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu?

Á það til að hlaupa stundum á mig.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?

Óstundvísi og geta ekki gert það sem ég taldi upp áðan, skera ostinn rétt, sumir vinnufélagar mínir á Sjúkraþjálfun Suðurnesja eru þarna algjörlega ófærir í því.

– Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun:

Be kind always.

– Hver er elsta minningin sem þú átt?

Þegar ég var að veiða með pabba í Brunná við bæinn þar sem hann ólst upp.

– Orð eða frasi sem þú notar of mikið:

Nota þennan svolítið heima hjá mér við fjölskylduna ... æi viltu ná í þetta fyrir mig?

– Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu?

Ég færi líklega til baka um fjögur, fimm ár, til Manchester og ég færi ekki í Liverpool-bolnum mínum á leikinn Manchester - Liverpool. Ég kæmist þá kannski inn á leikinn.

– Hver væri titillinn á ævisögu þinni?

Maðurinn sem fór ekki í útilegu.

– Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera?

Donald Trump, ég myndi byrja á því að segja af mér forsetaembættinu og svo myndi ég líklega fara að spila golf á einhverjum af golfvöllunum mínum.

– Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð?

Hef mikinn áhuga á að bjóða meistara Klopp í mat, held að það yrði mjög skemmtilegt. Svo væri ég alveg til í að detta í smá dinner með Bono og The Edge og spjalla um heimsmálin og fá þá svo til að taka lagið í stofunni hjá mér.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Þetta ár hefur ekki verið alveg uppá það besta, það má þó segjast eins og er að þegar það hægðist á öllu í kjölfarið á COVID-19 þá sá maður svolítið hlutina í réttu ljósi og sér hve heppinn maður er með fjölskyldu og vini.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Sumarið verður flott, líklega mikil vinna. Fótboltinn mun standa sig vel og maður á eftir að fara eitthvað um landið og kanna hótelin með fjölskyldunni.

– Hvað á að gera í sumar?

Fótbolti og sund lita sumarið hjá okkur. Vegna COVID þá frestuðust öll sundmótin og verða þau fyrirferðamikil næstu vikurnar.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Við munum líklega ferðast að mestu innanhúss en jafnvel verða farnar stuttar ferðir um landið þegar tími gefst til.

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Fyrst myndi ég náttúrlega fara með þá á Garðskaga og skoða sólarlagið þar, algjörlega geggjað. Svo myndi ég fara með þá þennan helsta hring, Brú milli heimsálfa, Sandvík, Brimketil og Gunnuhver og ef þeir eiga nægilega mikinn pening þá myndi ég biðja þau að bjóða mér í Bláa lónið.

– Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu....

... til Ítalíu í frí með fjölskyldunni minni. Myndi líklega enda á Lake Como og hafa það huggulegt í tvær vikur.