Lúðrasveit TR hitar upp fyrir landsleik í Króatíu í næstu viku
Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir þriðjudaginn 19. nóvember n.k. kl.17.30 í Stapa, Hljómahöllinni. Að þessu sinni eru tónleikarnir óvenju snemma dags, sem kemur til vegna landsleiksins við Króatíu.
Fram koma yngsta, mið og elsta sveit og það kennir ýmissa grasa í efnisskrá sveitanna. Þema tónleikanna er þó kvikmyndatónlist og jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum. Sem dæmi, þá verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Kitty Kitty Bang Bang, The Simpsons, Forrest Gump og tónlist úr Disney-kvikmyndum.
Stjórnendur lúðrasveitanna eru Áki Ásgeirsson, Baldvin I. Tryggvason, Emil Þ. Emilsson, Harpa Jóhannsdóttir og Karen J. Sturlaugsson.
Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti.