Lúdómeistarakeppni í 88 Húsinu á þriðjudag. Verður næsta HM í Reykjanesbæ?
Reykjanesbæjarmót 16-25 ára í Lúdó verpur haldið í 88 húsinu nk. þriðjudag.
Til mikils er að keppa þar sem sigurvegarinn hlýtur að launum þátttöku rétt á heimsmeistaramótinu í Lúdó sem verður einmitt haldið í Reykjanesbæ þann 9. október.
„Svo eru einnig glæsilegir vinningar í boði auk sæmdarheitisins Lúdómeistari Reykjanesbæjar 2004 sem er alls ekki leiður titill að bera,“ sagði Styrmir Barkarson, keppnishaldari í samtali við Víkurfréttir.
.