Lokasýningar Slappaðu af!
Söngleikurinn Slappaðu af! eftir Felix Bergsson sem sýndur hefur verið í Frumleikhúsinu síðastliðinn mánuð hefur kætt margan manninn. Núna er það ævintýri hinsvegar komið á leiðarenda og hafa síðustu sýningar hafa verið settar niður á blað.
Söngleikurinn er samstarf Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Leikfélags Keflavíkur en hefur allt gengið vonum framan, bæði hvað varðar sýninguna sjálfa og viðbrögð fólks á sýningunni.
Lokasýningar eru eftirfarandi: Fimmtudaginn 25. nóvember kl. 20:00 og sunnudaginn 28. nóvember kl. 20:00. Þetta er allra síðasta tækifæri til að bera sýninguna augum! Miðapantanir eru í síma 421-2540. Tryggðu þér miða - góða skemmtun!