Bygg
Bygg

Mannlíf

Lokaorð Sævars: Næsta ár
Laugardagur 30. desember 2017 kl. 05:00

Lokaorð Sævars: Næsta ár

Áramótin eru á næsta leyti. Fyrir mitt leyti eru áramótin algjört sinnep. Ég elska þó flugelda, brennur, annála og áramótaskaup ekkert meira en góðu hófi gegnir. Nei, það er önnur ástæða fyrir því áramótin hafa alltaf heillað mig. Áramótin bjóða nefnilega upp á nýtt upphaf. Þau eru lok ákveðins tímabils á sama tíma og þau eru upphaf nýs. Áramótin vekja bæði von í brjósti voru og væntingar um að það tímabil sem er í vændum verði á einhvern hátt betra en það sem er að líða. Það breytir ekki máli hversu ferleg fortíðin var eða nútíðin er og hve myrkrið er mikið því um leið og maður sér áramótin nálgast gefur að líta örlitla ljósatæru við enda ganganna. Það er svo lýsandi að vita til þess að maður getur hafið nýtt ár frá grunni, lagt öllum þeim löstum sem maður hefur tileinkað sér og tekið upp nýja siði – á nýju ári!

Þetta heillar mig mikið því hversu upplífgandi er það fyrir sérhlífnasta núlifandi Íslendinginn að vita til þess að hann þurfi ekki að leggja öllum sínum löstum í dag eða á morgun? Það er orðið um seinan og því gerum við það bara síðar. Frestum þessu aðeins. Þannig hefur þetta verið alla mína tíð. Ég veit ekki hversu oft ég hef ætlað mér að hætta að borða skyndibitamat eða hætta að drekka gos á næsta ári. Þá hef ég ætlað mér að byrja í ræktinni á næsta ári frá árinu 2009 en einhverra hluta vegna er ég ekki enn byrjaður. Ég er enn að fresta því. Hver ástæðan er veit ég í sjálfu sér ekki en það er að minnsta kosti ljóst að næsta ár er löngu komið, hjá öllum nema aðdáendum Liverpool. Tja, ætli ég byrji ekki bara í ræktinni þegar Liverpool verður Englandsmeistari? Jú, ég byrja í ræktinni á næsta ári...

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Að lokum skil ég ykkur eftir með frumsamdri limru sem fjallar um ungan mann sem fór aðeins of geyst inn í áramótin.

Satan er settlegur fýr
sýgur í sjöunda gír
leyfar af kóki 

nú liggur í móki
og Lausnarans dyr hann knýr

Gleðilegt ár, það er að segja næsta ár!