Lögrelgan ánægð með sjómannahátíðina í Grindavík
Mikil hátíðahöld fóru fram í Grindavík um helgina, Sjóarinn síkáti, og er skemmst frá því að segja að skemmtanahaldið fór einstaklega vel fram og eiga skipuleggjendur þakkir skyldar fyrir góða skipulagningu, segir lögreglan á vef sínum. Þarna var um mjög skemmtilega fjölskylduskemmtun að ræða og þarna mætti fjöldi manns til þess að njóta hátíðarhaldanna í frábæru verðri.Það er skoðun lögreglunnar að mannlífið á Suðurnesjum sé að gjörbreytast til hins betra og vill þakka það markvissri forvarnastefnu bæjaryfirvalda og lögreglunnar á svæðinu. Ekki má gleyma að þakka fólkinu sjálfu sem sótti þessi hátíðarhöld, en lögreglan þurfti ekki að hafa afskipti af einum einasta manni. Til hamingju Grindvíkingar með vel heppnaða fjölskylduskemmtun, segir að lokum á vef lögreglunnar.
Myndin: Fjöllistamaður skemmti fjölda fólks neðan við saltfisksetrið. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Myndin: Fjöllistamaður skemmti fjölda fólks neðan við saltfisksetrið. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson