Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Lögreglukór Reykjavíkur í Hljómahöllinni
Mánudagur 12. mars 2012 kl. 09:34

Lögreglukór Reykjavíkur í Hljómahöllinni

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögreglukór Reykjavíkur, ásamt Eyþóri Inga Gunnlaugssyni og hljómsveit halda tónleika í Hljómahöllinni 14. mars kl. 20:30 Gestir á tónleikunum verða Karlakór Keflavíkur.

Lögreglukórinn mun að mestu flytja tónlist af nýútkomnum geisladisk sínum (GAS) sem unninn var á síðasta ári og kom út í maí 2011. Þar eru lög íslenskra trúbadora eins og KK, Megasar, Bubba Morthens, Harðar Torfa, Magnúsar Þórs og Bergþóru Árnadóttur. Einnig eru gamlir slagarar af fyrri disk kórsins og ekki að efa að rokksöngvarinn snjalli, Eyþór Ingi, mun skila lögum eins og Knokcing on Heven’s Door, eða Born to be wild (Þoli’ ekkert væl) af fullum krafti.

Geisladiskur kórsins heitir GAS (Góðir alþýðsöngvar) sem er tilvitnun í fræga atburði í tengslum við hrunið. En textarnir og lagavalið tengist þeim tímum sem við lifum. Það er nefnilega þannig að söngvaskáldin okkar hafa löngum ort um óréttlætið, siðgæðið, neyð og myrkur sálarinnar, en líka minnt okkur á að hlýjan, ástin og ljósið sé okkar helsta von.

Hljómsveitinni stýrir Gunnar Gunnarsson organisti og einn af okkar betri jazz píanistum ásamt úrvals hljóðfæraleikurum.

Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson sem einnig er stjórnandi Karlakórs Keflavíkur. Þetta munu verða einir af síðustu tónleikum Guðlaugs með Lögreglukórnum en samstarf þeirra hefur verið langt og farsælt.