Lögðu blómsveig við Vonina í Grindavík
Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavík, brá sér til Grindavíkur á sjómannadaginn með blómsveiginn sem átt að leggja við minnismerkið Vonina á laugardeginum en var aflýst. Það vildi svo vel til að heiðurshjónin Hinrik Bergsson og Guðný Guðbjartsdóttir voru í Grindavík. Það var því vel við hæfi að Hinrik leggði blómsveiginn við Vonina. Á myndinni eru hjónin með séra Elínborgu. Sjómannamessa var svo haldin í Vídalínskirkju þar sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Pétur H. Pálsson fluttu ávörp.