Mannlíf

  • Lög unga fólksins frumsýnd á morgun
    Frá æfingu á Með blik í auga í gærkvöldi. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Lög unga fólksins frumsýnd á morgun
Þriðjudagur 1. september 2015 kl. 09:10

Lög unga fólksins frumsýnd á morgun

Með blik í auga setur upp sýninguna Lög unga fólksins á Ljósanótt 2015 en sýningar hópsins eru orðnar ómissandi hluti af dagskrá hátíðarinnar.

Að þessu sinni verður horft til þessa vinsæla útvarpsþáttar og skoðuð sú togstreita og þau átök sem urðu milli þeirra ungu og hinna sem eldri voru. „Hvar er Tom Jones?“ heyrðist þá iðulega þegar þau eldri könnuðust ekki við lögin sem spiluð voru. Flutt verða lög frá 1965 – 1982 og tímaferðalagið heldur áfram.

Söngvarar sýningarinnar eru stuðmaðurinn Egill Ólafsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Pétur Örn Guðmundsson og Stefanía Svavarsdóttir. Auk þess má nefna stórhljómsveit undir stjórn Arnórs B. Vilbergssonar en sögumaður er Kristján Jóhannsson.

Haldnar verða þrjár sýningar í Andrews leikhúsinu á Ásbrú, frumsýning verður miðvikudaginn 2. september og tvær sýningar á sunnudaginn 6. september kl. 16 og 20.

Miðasala fer fram á midi.is og er miðaverð kr. 5.300.





Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024