Bygg
Bygg

Mannlíf

Lofar góðu fjöri
Laugardagur 29. apríl 2006 kl. 15:45

Lofar góðu fjöri

Jóhann Þór Jónsson, annar þáttastjórnenda Splash sjónvarpsþáttanna, stendur að Splashpartýi á Traffic í kvöld. Splashpartýin hjá Jóa og Óla Geir bróður hans hafa orðið vinsælli með hverju partýinu og nú er svo búið að þeir bræður ætla að bjóða upp á sætaferðir frá Reykjavík suður með sjó í Splashpartýið.

„Það ættu allir að mæta og taka þátt í þessu með okkur og fylla staðinn, ég lofa góðu fjöri,“ sagði Jóhann Þór í samtali við Víkurfréttir.

Traffic verður opnað kl. 22:00 og þá einmitt fer rútan frá Smáralind í Kópavogi en hún heldur svo aftur til Reykjavíkur kl. 04:30 í nótt.

Það verða ýmsar óvæntar uppákomur í Splashpartýinu, veitingar í boði á meðan birgðir endast, Tveir leikmenn og Einar Örn trúbador munu troða upp og DJ Páll Óskar verður plötuknapi kvöldsins og mun þeyta skífum fram á rauðan morgun. Þema kvöldsins er liturinn bleikur og aðgangseyrir er kr. 999.
Bílakjarninn
Bílakjarninn