Lóa Henný sýnir í Saltfisksetrinu
Málverkasýning Lóu Hennýar Ólsen „Leikur að Litum“ opnaði í Saltfisksetrinu í dag kl:14:00. Sýningin stendur til 4. september og er opið alla daga frá 11:00 til 18:00.
Lóa Henný sækir hugðarefni sín víða og má sjá hin margvíslegustu form, bæði í landslagsmyndum hennar, sem og í abstrakt-verkum.
VF-mynd/Þorgils