Ljósmyndasýningin Garðvegur 1 - Arfur breyttrar verkmenningar
Þekkingarsetur Suðurnesja mun í lok sumars setja upp ljósmynda- og sögusýninguna Garðvegur 1 – Arfur breyttrar verkmenningar. Húsnæði Þekkingarsetursins á Garðvegi 1 í Sandgerði hefur mikla sögu að geyma og á sýningunni er saga hússins sögð í máli og myndum.
Í dag eru þar ásamt Þekkingarsetrinu, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum og Náttúrustofa Suðvesturlands, en í gegnum árin hefur ýmis starfsemi verið í húsinu. Upphaflega var það byggt sem frystihús og þjónaði þeim tilgangi í áratugi.
Ef einhverjir eiga gamlar ljósmyndir af húsnæðinu eða starfseminni á Garðvegi 1 og hafa áhuga á að þær verði hluti af sýningunni mega þeir endilega senda þær á netfangið [email protected] ásamt upplýsingum um myndefni og ljósmyndara.
Sýningin er hluti af dagskrá Evrópska menningarminjadagsins og sett upp í samstarfi við Minjastofnun Íslands.
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja gerði Þekkingarsetrinu kleift að setja upp sýninguna með því að veita styrk til vinnslu hennar. Sýningin opnar á Sandgerðisdögum laugardaginn 29. ágúst kl. 13 og verður aðgangur ókeypis.