Mánudagur 10. janúar 2005 kl. 11:25
Ljósmyndanemi frá Álandseyjum með sýningu í Saltfisksetrinu

Starfsár Saltfistkseturs Íslands hefst með ljósmyndasýningu í Listsýningarsalnum. Þar er sýning á ljósmyndum Kenneth D. Bamberg en hann er fæddur á Álandseyjum 1981. Kenneth tekur svarthvítar myndir og hefur hann nú unnið að verkefni sem hann kallar „Farfuglar“ og er þetta hans fyrsta sýning. Á sýningunni eru 12 myndir af útlendingum sem fluttst hafa til Íslands eða Finnlands af ýmsum ástæðum en eru þó ekki flóttamenn. Helmingur myndanna eru teknar á Íslandi en hinn í Finnlandi. „Ég gerði þetta verkefni því ég hef áhuga á menningu og finnst að Finnar og Íslendingar geti lært mikið af öðrum menningarheimum. Ef þessar ljósmyndir gefa þeim sem þær líta glaðlegri mynd af innflytjendum, þá er mikið verk unnið,“ sagði Kenneth. Hann er í námi við Listaskólann í Uusikaarlepyy í Finnlandi en hefur dvalið þrisvar á Íslandi á undanförnum árum. Hann starfar nú í félagsmiðstöðinni Þrumunni í Grindavík og mun síðan halda til náms við Listaháskóla Karel de grote Antwerpen í Belgíu. Í samtali við Víkurfréttir sagði Kenneth að sér finnist Íslendingar og Finnar vera mjög líkir, svolítið lokaðir og kaldir en mjög vingjarnlegir þegar maður kynnist þeim betur. Sýningin stendur til 21. janúar og er opin alla daga frá kl.11:00-18:00. Hrönn Kristjánsdóttir safnstjóri sagði að nú þegar væri búið að skipuleggja fjölda sýninga og verða þeim gerð frekari skil hér á Grindavíkursíðunni á næstu mánuðum.
Myndin: Kenneth við tveggja ljósmynda sinna á sýningunni. VF-ljósmynd/Þorsteinn G. Kristjánsson.