Mannlíf

Ljósmyndaleikur á Ljósanótt
Sigurmyndin frá því í fyrra. Ljósmynd :María Sigurborg Kaspersma.
Þriðjudagur 2. september 2014 kl. 07:00

Ljósmyndaleikur á Ljósanótt

- Veglegir vinningar í boði #ljosanott2014

Reykjanesbær og Víkurfréttir standa aftur fyrir skemmtilegum ljósmyndaleik í tengslum við Ljósanótt þar sem snjallsíminn getur fært fólki glæsilega vinninga. Nú leitum við til bæjarbúa og gesta til þess að fanga andrúmsloftið á einni glæsilegustu bæjarhátíð landins með ljósmyndum. Það eina sem þú þarf að gera er að merkja myndina þína frá hátíðarhöldunum #ljosanott2014 á ljósmyndaforritinu Instagram.

Myndin þarf á sem bestan hátt að fanga stemninguna á Ljósanótt og að sjálfsögðu skemmir ekki að myndin sé falleg og frumleg. Vinningshafar verða birtir í Víkurfréttum þann 11. september en þriggja manna dómnenfnd velur sigurvegara. Myndir verða einnig birtar á vefsíðu Víkurfrétta vf.is á meðan Ljósanótt stendur yfir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

1. verðlaun - IdeaTab A7600 spjaldtölva frá Lenovo frá Nýherja að verðmæti 35 þús. Spræk og skemmtileg spjaldtölva sem hentar vel í alla afspilun og leiki. Einnig sex mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú

 

2.verðlaun - Árskort í Sundmiðstöð/Vatnaveröld Sunnubraut að verðmæti 22. þús. Einnig þriggja mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú

 

3. verðlaun - 15 þúsund kr. inneign í Netto Krossmóa. Einnig eins mánaðar kort í Sporthúsið á Ásbrú.

María Sigurborg Kaspersma, 25 ára Keflavíkurmær, stóð uppi sem sigurvegari í leiknum í fyrra og hlaut glæsilegan snjallsíma að launum.

#ljosanott2014