Ljósanótt nálgast: Fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fjölskyldur
Nú er aðeins ein og hálf vika þar til Ljósanótt 2010 verður sett og verður mikið um að vera þá daga sem hún stendur yfir. Auk þess að vera menningarhátíð er Ljósanótt fjölskylduhátíð og því er áhersla lögð á skapandi og skemmtilega dagskrá fyrir börn og fjölskyldur.
Börn taka virkan þátt í setningu Ljósanætur þegar þau sleppa marglitum blöðrum til himins í táknrænni athöfn við Myllubakkaskóla. Þau taka líka fyrstu skrefin í Ljósanæturdagskránni í ár með skemmtilegu stígvélaverkefni en þar sýna nemendur í leikskólanum Holti verk unnin úr barnastígvélum meðfram fjörugarðinu í Innri Njarðvík.
Það er tilvalið að taka börnin með á allan þann fjölda myndlistarsýninga sem gestum standa til boða og Íþróttaálfurinn og Solla stirða munu skemmta börnunum í Nettó bæði föstudag og laugardag milli kl.15 og 16. Þá bjóða Kefjet og Reykjanesbær ungum krökkum í sæþoturúnt ef veður leyfir.
Á laugardeginum verður boðið upp á skemmtilega dagskrá á útisviðinu við Ægisgötu þar sem m.a. koma fram nemendur í dansskólum Bryn-ballett og Danskompan sem og söngnemendur hjá Gargandi snilld og nemendur í Taekwondo sýna listir sínar. Einnig er búist við leynigesti í boði Nettó.
Öll fjölskyldan getur tekið spreytt sig saman á laufléttum ratleik í Bátasafni Gríms Karlssonar og svo er tilvalið að líta við hjá Skessunni í hellinum og Fjólu vinkonu hennar en hún býður gestum Ljósanætur upp á lummur í tilefni dagsins.
Skemmtilegt tilraunaland verður í Skrúðgarðinum og þar verður jafnframt hoppukastali og leiktæki skátanna. Skrúðgarðurinn verður því tilvalinn staður fyrir fjölskylduna laugardag og sunnudag en á sunnudag býður Keflavíkurkirkja börnum og fjölskyldum þeirra til fjölskylduskemmtunar.
Þá verða gospelkrakkar frá Hjálpræðishernum í Reykjanesbæ með skemmtilega fjölskyldutónleika í Bíósal Duushúsa sunnudaginn 5. september kl.14:00.
Það verður nóg um að vera fyrir börnin sem og fullorðna á ljósanótt. Skipuleggjendur hátíðarinnar minna á útivistartíma barna og hvetja foreldra til þess að njóta Ljósanætur með börnum sínum.