Ljósanótt haldin 2. - 5. september 2010
Ljósanótt verður haldin hátíðleg dagana 2. - 5. september n.k. og er dagskrá óðum að taka á sig mynd.
Boðið verður upp á hefðbundna dagskrárviðburði s.s. árgangagönguna, kjötsúpuna, tónleika unga fólksins og glæsilega dagskrá á stóra sviði við Ægisgötu auk þess sem fjöldi sýninga verður opnaður um allan bæ.
Dagskrá verður sett inn á vefinn jafnóðum og hún tekur á sig mynd og eru allir þátttakendur hvattir til þess að skrá sína viðburði beint inn á vefinn. Síðasti skilafrestur í prentaða dagskrá er 19. ágúst en hægt er að skrá viðburði inn á vefinn alveg fram að Ljósanótt.
Sótt er um sölubása á netfangið sala@ljosanott og þeir sem vilja setja upp ljósanæturfána geta haft samband við Merkiprent sem jafnframt selja ýmsar vörur sem tengjast Ljósanótt. Víkurfréttir munu hafa umsjón með merkingum á fyrirtækjafánum sem settir eru upp á ljósastaura fyrir ljósanótt.
Bæjarbúar eru hvattir til þess að setja bæinn í hátíðarbúning og fyrirtæki beðin um að hreinsa til á lóðum sínum fyrir þessa skemmtilegu bæjarhátíð.
Allar frekari upplýsingar um ljósanótt eru veittar á ljosanott.is.
Frá Reykjanesbæ.