Ljósanótt 2010: Hægt að skrá viðburði á vefnum
Dagskrá Ljósanætur er óðum að taka á sig mynd á vefnum ljosanott.is. Þeir sem standa að sýningum og öðrum viðburðum geta sjálfir skráð þá inn á vefinn þar sem þeir bætast við dagskrána.
Að venju verður fjöldi myndlistarmanna með sýningar á Ljósanótt og opnar vinnustofur.
Flestar sýninganna opna á fimmtudaginn 2.sept kl. 18:00 og hefur skapast skemmtileg stemmning í kringum þær. Á föstudeginum opna svo sýningar Suðsuðvestur og Listasafns Reykjanesbæjar.
Fleiri sýningar eiga eftir að bætast við og eru sýnendur hvattir til þess að skrá þær sem fyrst svo þær komist í prentaða dagskrá en lokaskil eru 19. ágúst.
Smellið hér til að fara á vef Ljósanætur.