Ljósanæturfundur með bæjarbúum
Ertu með hugmynd að viðburði, tónleikum, afþreyingu eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt? Eða langar bara að taka þátt í umræðum.
Menningarráð heldur fund um Ljósanótt og framkvæmd hennar árið 2016 í Bíósal Duushúsa þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19.30 og býður alla bæjarbúa velkomna til skrafs og ráðagerða.