Ljósanæturdiskurinn kominn í framleiðslu
Geisladiskur, sem inniheldur Ljósanæturlögin 2006, er nú í framleiðslu og er stefnt að því að hann komi út þann 24. þessa mánaðar. Diskurinn inniheldur þau 10 lög sem sérstök dómnefnd valdi til úrslita um Ljósanæturlagið 2006 en alls bárust 85 lög í keppnina. Ljósalagið verður síðan valið með netkosningu þegar þar að kemur.
Þeir Rúnar Júlíusson og Guðmundur Kristinn Jónsson hjá Geimsteini, sem sér um útgáfu disksins, segja að þau tíu lög sem valin voru til úrslita í ár séu afar fjölbreytt en að þeim standa metnaðarfullir einstaklingar, bæði þekktir höfundar sem og óþekktir. Höfundar þessara tíu laga eru: Jóhann G. Jóhannson, Bryndís Sunna Valdimarsdóttir, Arnór Vilbergsson, Bragi Valdimar Skúlason, Védís Hervör Árnadóttir, Halldór Guðjónsson lag og Þorsteinn Eggertsson texti, Ólafur Arnalds lag og Friðrik Sturluson og Ólafur Arnalds texti, Magnús Þór Sigmundsson, Hilmar Hlíðberg Gunnarsson, Vignir Bergmann lag og Bjartmar Hannesson texti.
Það er Geimsteinn sem sér um útgáfu disksins, eins og áður sagði. Guðmundur Kristinn Jónsson hjá Geimsteini og Guðmundur Pétursson hafa haft umsjón með vinnslu laganna og aðstoðað höfunda við útsetningar.
Ljósanæturlagið verður síðan valið með netkosninu þegar þar að kemur á vefnum losanott.is og hlýtur höfundur vinningslagsins 400 þúsund krónur í verðlaun.
Það er nóg að gera hjá Geimsteini um þessar mundir, að sögn Rúnars Júlíussonar, fjórir diskar hafa nýlega verið gefnir út með Koju, Ælu og Baggalút og með Rúnari sjálfum afar áheyrilegur diskur sem ber heitið Nostalgía. Þá er í vinnslu diskur með eðal-jazzsveitinni Gömmum og ýmislegt fleira er í farvatninu enda hefur íslensk útgáfa sjaldan verið gróskumeiri, að sögn Rúnars, sem bendir á að af 30 söluhæstu plötunum hér á landi þessa dagana séu aðeins fjórar erlendar. Rúnar segir að skýringin geti hugsanlega verið sú að fólk kaupi frekar íslenskt efni en niðurhali erlendu efni af Netinu.
„Gæði íslenskrar tónlistar er með því mesta sem fólk hefur heyrt til þessa, fjölmargir tónlistarmenn og hljómsveitir hafa verið að koma fram með vandað og metnaðarfullt efni. Það hefur greinilega fallið í góðan jarðveg hjá íslensku þjóðinni,“ sagði Rúnar í samtali við VF.
Mynd: Rúnar og Kiddi hjá Geimsteini. Á veggnum á bak við þá er allt það helsta sem Geimsteinn hefur gefið út og plássið á honum minnkar stöðugt. Diskurinn með Ljósanæturlögunum 2006 bætist bráðlega við safnið á veggnum.
VF-mynd: Ellert Grétarsson.