Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ljósalagið á 10 ára afmælishátíðinni eftir Rúnar Júl
Þriðjudagur 11. ágúst 2009 kl. 15:34

Ljósalagið á 10 ára afmælishátíðinni eftir Rúnar Júl

Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátið Reykjanesbæjar verður haldin í 10. sinn dagana 3. - 6. september.

Frá árinu 2002 hefur verið valið einkennislag hátíðarinnar eða svokallað Ljósalag.  Flest árin hefur verið haldin keppni um Ljósalagið og hafa mörg góð lög komið út úr þeirri keppni, s.s. einkennislag hátíðarinnar Velkomin á Ljósanótt, Ljóssins englar, Ástfangin og fl.

Í ár var tekin sú ákvörðun að heiðra minningu Rúnars Júlíussonar með því að velja lag úr hans safni sem Ljósalag ársins en Rúnar var bæjarlistamaður Reykjanesbæjar síðustu æviárin sín. Lagið "Ég sá ljósið" kom fyrst út á sólóplötu Rúnars 1976 og samdi hann bæði lag og texta. Lagið hefur verið sett í nýjan búning og er nú sungið af Sigurði Guðmundssyni. Um hljóðfæraleik sáu Baldur Þórir Guðmundsson, Björgvin Ívar Baldursson, Björn Árnason á bassa, Júlíus Freyr Guðmundsson og Þórir Baldursson. Upptaka fór fram í upptökuheimili Geimsteins.

Í tilefni af f 10 ára afmæli Ljósanætur verður gefinn út safndiskur með öllum ljósalögum hátíðarinnar frá upphafi auk þess sem diskurinn hefur að geyma lagið "Gamli bærinn minn“ eftir Gunnar Þórðarson og Þorstein Eggertsson sem ávallt er flutt við lok stórglæsilegrar flugeldasýningar Ljósanætur.

Einnig er hægt að hlusta á ljósalög síðustu ára á vef hátíðarinnar:  ljosanott.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024