Ljósahús Reykjanesbæjar valið af lesendum vf.is
Suðurnesjamenn og lesendur vf.is munu velja Ljóshús Reykjanesbæjar 2012 í sérstakri vefkosningu. Þetta er breyting frá því sem gert hefur verið mörg undanfarin ár þegar sérstök dómnefnd hefur valið Ljósahús ársins.
Fulltrúar frá Reykjanesbæ og Víkurfréttum hafa undanfarin ár séð um að velja fallegustu ljósahús bæjarins. Nú verður breytingin þannig að nefndin mun í kjósa tíu hús í forvali og úr þeim hópi munu bæjarbúar velja Ljósahús Reykjanesbæjar 2012 í sérstakri vefkosningu á vef Víkurfrétta, vf.is, sem mun standa yfir frá 13. til 16. des.
Niðurstaða kosninganna verður tilkynnt þriðjudaginn 18. desember kl. 18.00 í Duushúsum og eru allir bæjarbúar velkomnir að vera viðstaddir. Húsið sem flest atkvæði fær verður Ljósahús Reykjanesbæjar og næstu tvö fá líka viðurkenningu.
Verðlaunin koma eins og áður frá HS Orku/Veitu og eru inneign á rafmagnsreikning viðkomandi: 1. verðlaun: 30.000, 2. verðlaun 20.000, 3. verðlaun 15.000. Einnig fá verðlaunahafar sérstök viðurkenningarskjöl frá Reykjanesbæ.
Sama nefnd „jólanefndin“ velur jólaglugga Reykjanesbæjar og verða úrslitin tilkynnt við sama tækifæri.
Grétar Ólason, eigandi Ljósahúss Reykjanesbæjar 2011 og oft áður er búinn að skreyta hús sitt og sagði hann í spjalli við Víkurfréttir að hann myndi líklega tendra ljósin á morgun, laugardaginn 1. des. „Þetta er mikil vinna en skemmtileg. Hingað hafa undanfarin ár komið fjöldi fólks, allt upp í tveggja hæða rútur. Í fyrra stóðu allt í einu sjötíu Kínverjar fyrir utan húsið. Eitt skiptið kom heil rúta með kvenfélagi og ég slapp við að gefa þeim kaffi en þær þurftu margar að koma inn og pissa. Það var skemmtileg heimsókn.
En maður eldist og þetta tekur mikinn tíma. Ég hef nánast ekki gert neitt annað þessa vikuna og hefði líklega ekki klárað verkið fyrir helgina ef ég hefði ekki fengið hjálpa frá syni og tengdasyni. Ég hef sagt undanfarin ár að nú sé komið nóg en svo þegar kemur að þessu þá er bara eins og ég geti ekki hætt,“ sagði Grétar í léttum dúr við Víkurfréttir.
Suðurnesjamenn hafa mörg undanfarin ár verið duglegir að skreyta hús sín í desember.