Ljósahús Reykjanesbæjar 2007: Tilnefningar óskast
 Íbúar Reykjanesbæjar eru minntir á hina árlegu samkeppni um Ljósahúsið.  Menningar- íþrótta- og tómstundsvið Reykjanesbæjar ásamt Hitaveitu Suðurnesja stendur nú í áttunda sinn fyrir samkeppni um “LJÓSAHÚS” Reykjanesbæjar 1. – 3. sæti, fallegasta gatan, fallegasta raðhúsið og fallegasta fjölbýlishúsið.  Einnig verður veitt viðurkenning fyrir fallegasta jólaglugga fyrirtækis.
Íbúar Reykjanesbæjar eru minntir á hina árlegu samkeppni um Ljósahúsið.  Menningar- íþrótta- og tómstundsvið Reykjanesbæjar ásamt Hitaveitu Suðurnesja stendur nú í áttunda sinn fyrir samkeppni um “LJÓSAHÚS” Reykjanesbæjar 1. – 3. sæti, fallegasta gatan, fallegasta raðhúsið og fallegasta fjölbýlishúsið.  Einnig verður veitt viðurkenning fyrir fallegasta jólaglugga fyrirtækis.Hægt er að koma tilnefningum til dómnefndar inn á heimasíðu Reykjanesbæjar, [email protected] eða hringja þær inn í síma 421-6700. Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir kl. 14.00 mánudaginn 11. des. Úrslit verða kynnt miðvikudaginn 12. des. kl. 18.00 í Duushúsum. Vegleg verðlaun. Allir bæjarbúar velkomnir.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				