Ljósadýrð og menningarveisla á Garðskaga
Mikil ljósadýrð hefur verið á Garðskaga tvo síðustu laugardaga í tengslum við vita- og vísnahátíð sem haldin var í Garðinum. Það var hópurinn Norðanbál sem sá um ljósalistaverkið á Garðskaga en Garðskagaviti, byggðasafnið og Hólmsteinn GK voru lýst upp í regnbogans litum.
Í Garðskagavita var boðið upp á upplestur sl. laugardag og á byggðasafninu voru tónleikar. Fleiri myndir frá þessari uppákomu verða í Víkurfréttum á fimmtudaginn.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson