Mannlíf

Ljós og náttúra Reykjanesskaga
Ein af myndum Jóns Rúnars Hilmarssonar á sýningunni.
Fimmtudagur 15. nóvember 2018 kl. 09:57

Ljós og náttúra Reykjanesskaga

Nýjar ljósmyndir eftir Jón Rúnar Hilmarsson verða sýndar á sýningu í Bíósal Duus Safnahúsa frá 16. nóvember n.k. Sýningin stendur til 13. janúar 2019.
 
Á sýningunni verða myndir sem sýna landslag og náttúru Reykjanesskagans.
 
Myndirnar voru teknar á mismunandi árstíðum og tímum dags á síðustu tveimur árum.
 
Höfundur stefnir að útgáfu ljósmyndabókar næsta vor og verða þessar myndir í þeirri bók sem kemur til með að dekka allt Ísland. Boðið verður upp á samtal við ljósmyndara 21. nóvember á opnunartíma safnsins.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024