Ljóðasamkeppnin Ljósberinn 2024 haldin í ágúst
Ljóðasamkeppnin Ljósberinn 2023 verður haldin í tengslum Ljósanótt. Innsent ljóð má ekki hafa birst áður og æskilegt er að það fjalli um Suðurnesin á einn eða annan hátt.
Veitt verða verðlaun fyrir besta ljóðið að mati dómnefndar og auk þess fá tvö ljóð í viðbót viðurkenningu.
Í dómnefnd sitja skáldin: Anton Helgi Jónsson, Bergrún Íris Sævarsdóttir Guðmundur Magnússon, Garðar Baldvinsson og þýðandinn
Helga Soffía Einarsdóttir.
Ljóðin skal merkja með dulnefni ásamt nafni, heimili, netfangi og símanúmeri höfundar í öðru lokuðu umslagi með sama dulnefni merkt „Ljósberinn“ til Bókasafns Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ.
Skilafrestur rennur út mánudaginn 26. ágúst 2024.
Einnig má senda ljóðin ásamt upplýsingum um höfund á netfangið: [email protected] ef það hentar betur.
Tilkynnt verður um úrslit föstudaginn 6. september 2024. Þá munu vinningshafar lesa upp ljóðin sín og taka á móti viðurkenningu. Sá viðburður verður auglýstur þegar nær dregur.