Bygg
Bygg

Mannlíf

Ljóðalestur og söngur á jólasýningu Sossu
Sossa og Anton Helgi sem las úr ljóðum sínum á jólasýningunni. VF-myndir/pket.
Fimmtudagur 11. desember 2014 kl. 00:23

Ljóðalestur og söngur á jólasýningu Sossu

Sossa myndlistarkona fór nýjar leiðir í málverkunum sínum sem hún sýndi á jólasýningu sinni um síðustu helgi. Sossa sótti innblástur í ljóð Antons Helga Jónssonar.

Sossa segir að Anton hafi lengi verið í uppáhaldi hjá sér, alveg frá því fyrsta ljóðabók hans kom út árið 1974. Ljóðin hans séu myndræn og húmorísk. Anton var sérstakur gestur á sýningunni og las upp úr ljóðum sínum. Sossa sagði að Anton væri alltaf á náttborðinu hjá sér og því væru þau vel tengd. Þá mætti tónlistarmaðurinn Svavar Knútur  með gítarinn og söng nokkur lög en hann er góður vinur myndlistarkonunnar. Fjölmargir aðdáendur og vinir Sossu mættu á sýninguna og var ekki annað að sjá en að ljóðrænu myndirnar hefðu vakið mikla athylgi þeirra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Víkurfréttir litu við hjá Sossu á jólasýninguna og þar voru þessar myndir teknar.

Það voru margir góðir gestir sem sóttu Sossu heim á jólasýningu hennar. Hér er hún á spjalli við Dagfríði Arnaróttur, Sigurvin Guðfinnsson mann hennar og Ottó Jörgensen.


Svavar Knútur er mikill vinur Sossu. Hann tók nokkur lög og spjallaði við sýningargesti.

Gestir á jólasýningu Sossu.

F.v. Fríða, Halldór, Einar og Ingibjörg voru í góðum gír hjá Sossu.