Bygg
Bygg

Mannlíf

Litskrúðugt bryggjuball í Grindavík - Bubbi og Ego á svið kl. 22
Föstudagur 5. júní 2009 kl. 20:58

Litskrúðugt bryggjuball í Grindavík - Bubbi og Ego á svið kl. 22

Nú er hafið mjög svo litskrúðugt bryggjuball á hátíðinni Sjóarinn síkáti í Grindavík. Íbúar Grindavíkur hafa verið að fjölmenna niður á hafnarsvæðið þar sem kvölddagskráin fer fram. Hverfin í Grindavík hafa öll verið skreytt, hvert með sínum lit og íbúarnir fóru fyrr í kvöld í skrúðgöngur sem báru liti sinna hverfa.

Dagskráin hófst á sviði kl. 20 með því að grindvískar hljómsveitir tóku lagið. Núna kl. 21:15 verður Bakkalábandið á sviði en það sló í gegn á Menningarvikunni í Grindavík. Bakkalábandið skipa Vísissystkinin Pétur, Páll Jóhann, Sólný, Kristín, Svanhvít og Margrét Pálsbörn ásamt þeim Ársæli Mássyni og Sveini Guðjónssyni.

Þegar klukkan slær 22 í kvöld mun Bubbi Morthens troða upp ásamt Ego og sjá um fjörið á bryggjuballinu til kl. 01 í nótt.

Tveir skemmtistaðir í Grindavík verða einnig með dansifjör fram á nótt.
23:00-03:00 Lukku Láki: Diskótek af bestu gerð.
00:00-04:00 Salthúsið: Hin magnaða grindvíska hljómsveit Geimfararnir sér um stuðið eins og þeim einum er lagið.

Bílakjarninn
Bílakjarninn



Myndin: Appelsínugulir og glaðir Grindvíkingar mæta á bryggjuballið núna rétt áðan. VF-mynd: Hilmar Bragi