Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Litið um öxl: Kristjana Gunnarsdóttir
Sunnudagur 30. desember 2007 kl. 13:56

Litið um öxl: Kristjana Gunnarsdóttir

Áramótin eru skemmtilegur tími og um leið ágætis tímapunktur bæði til að líta um öxl og skoða árið sem er að líða í aldanna skaut og einnig til að líta fram á veginn og spá í spilin.

Víkurfréttir höfðu samband við nokkra valinkunna Suðurnesjamenn og –konur og spurðu hvað væri minnisttæðast frá árinu 2007.

Kristjana Gunnarsdóttir – Íþróttakennari og þrekmeistari
Það sem mér fannst bera hæst á árinu sem er að líða er ... erfitt að svara, en líklegast er það að dóttir mín byrjaði í skóla og missti fyrstu tönnina sína...þvílík gleðistund.

Tengt íþróttum, þá er ég mjög sátt við árangur minn í spriklinu, Íslands-og bikarmeistari í einstaklingskeppni þrekmeistarans, Íslandsmeistari í liðakeppni Þrekmeistarans, silfurverðlaun í Alþjóðlegri þrekmeistarakeppni í Dubai, 1.sæti í 1/2 maraþoni í Reykjanesmaraþoni og svo að lokum í 4 sæti í vali á íþróttamanni ársins innan Alþjóða líkamsræktarsambandsins IFBB.

Ef bæta má við þetta þá stendur einnig upp úr hann Sveini afi minn í Sandgerði fyrir ótrúlegan lífskraft og góðmennsku, hann lætur seint bugast.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024