Bygg
Bygg

Mannlíf

Litið um öxl: Hjördís Árnadóttir
Þriðjudagur 1. janúar 2008 kl. 18:06

Litið um öxl: Hjördís Árnadóttir

Áramótin eru skemmtilegur tími og um leið ágætis tímapunktur bæði til að líta um öxl og skoða árið sem er að líða í aldanna skaut og einnig til að líta fram á veginn og spá í spilin. Víkurfréttir höfðu samband við nokkra valinkunna Suðurnesjamenn og -konur og spurðu hvað væri minnisstæðast frá árinu 2007.

 

Hjördís Árnadóttir - Félagsmálastjóri Reykjanesbæjar
Ef ég horfi á þetta með samfélagslegu gleraugunum, tel ég standa uppúr þá hröðu og jákvæðu uppbygginu sem hefur átt sér stað á “Vallarsvæðinu”. Þar hefur Grettistaki verið lyft og vörn verið snúið í sókn. Mér þykir miður hvernig sumir þingmenn kjördæmisins reyna að gera það starf sem þar hefur verið unnið tortryggilegt í stað þess að standa með okkur að uppbyggingu.  Ef þetta er pólitík, þá þarf eitthvað að endurskoða hana.

Sem Suðurnesjamanneskju þykir mér líka afar sérstakt það samkomulag sem Vogar og Grindavík hafa gert við Hafnarfjörð varðandi háhitasvæði á Suðurnesjum. Hvar eru heillindin eftir langvarandi samstarf sveitarfélaganna á Suðurnesjum? Ég segi enn og aftur ef þetta er pólitík, þá hlýtur að vera mál til komið að endurskoða hana!

Bílakjarninn
Bílakjarninn