Litið um öxl: Ásmundur Friðriksson
Áramótin eru skemmtilegur tími og um leið ágætis tímapunktur bæði til að líta um öxl og skoða árið sem er að líða í aldanna skaut og einnig til að líta fram á veginn og spá í spilin.
Víkurfréttir höfðu samband við nokkra valinkunna Suðurnesjamenn og –konur og spurðu hvað væri minnisttæðast frá árinu 2007.
Ásmundur Friðriksson – Verkefnastjóri hjá Reykjanesbæ
Persónulega: Hvað ég hef gaman af því að ganga. Ég er þessi litli feiti með stafina tvo, útvarpið og loftnetið upp úr hausnum. Er búinn með 30 ferðir af 100 sem ég ætla að klára í Garðinn fyrir næstu Ljósanótt.
Almennt: Að njóta þeirra forréttinda að búa í Reykjanesbæ þar sem tær framtíðin blasir við okkur bæjarbúum. Að njóta óvenjulegrar náttúru Reykjaness sem bæði skapar og gefur.