Litahlaup og sirkusatriði á vorhátíð
Njarðvíkurskóli lét veðrið ekki stoppa sig
Vorhátíð Njarðvíkurskóla var haldin í dag þriðjudaginn 31. maí og tókst hún með ágætum þótt veðrið hefði líklega mátt vera betra. Þetta árið var hún með breyttu sniði en hófst þó með skrúðgöngu eins og undanfarin ár. Að henni lokinni bauðst nemendum ýmis konar afþreying á skólalóð og í skrúðgarði, t.d. andlitsmálning, dans, bílasýning, hlutavelta, sápubolti, boðhlaup, ratleikur, litahlaup og sirkusatriði sem styrkt af Foreldrafélagi Njarðvíkurskóla.
Í lok vorhátíðar var pylsuveisla sem foreldrafélagið sá um og þá voru úrslit úr kjöri formanns og varaformanns fyrir næsta skólaár kynnt.
Skemmtilegar myndir frá hátíðinni má sjá hér að neðan.