Listaskóli barna útskrifar fyrsta hópinn í sumar
Listahátíð barna var haldin fyrir fullu húsi í dag í frumleikhúsinu en þá útskrifuðust 40 nemendur af fyrra námskeiði í Listaskóla barna.
Á listahátíðinni sýndu nemendur afrakstur námskeiðsins bæði myndverk og leikverk við góðar undirtektir foreldra og annara aðstandenda.
Listaskóli barna er tilraun til að skapa börnum í sveitarfélaginu tækifæri til þátttöku í listrænu og skapandi starfi. Í Svarta pakkhúsinu er lögð áhersla á myndræna tjáningu á fjölbreytilegan hátt. Í Frumleikhúsinu er leikræn tjáning hins vegar í fyrirrúmi. Þar munu börnin setja upp leikþætti, dansa, syngja og segja frá.
Farið er víða um bæinn og leitað fanga til listrænnar sköpunar. Söfnin eru skoðuð, styttur bæjarins athugaðar og farið á nokkra staði sem eru merkilegir út frá sögu- eða menningarlegu sjónarhorni. Verður þar stuðst við bæði sanna atburði og þjóðsögur á svæðinu.
Næsta námskeið hefst n.k. mánudag og er þegar orðið fullt.
.