Listasafn RNB: Sýning opnuð á Húsafellsmyndum Ásgríms
Sumarsýning Listasafns Reykjanesbæjar, Húsafellsmyndir Ásgríms Jónssonar var opnuð formlega í gær. Sýningin kemur frá Listasafni Íslands en L.Í. á stærsta safn verka Ásgríms. Húsafellsmyndir Ásgríms eru ákveðinn þáttur í þessari safneign en Ásgrímur dvaldist mikið á Húsafelli í Borgarfirði til að mála. Þangað kom hann fyrst til sumardvalar árið 1915 og aftur 1917 og 1919, eftir það varð Húsafell sá staður sem Ásgrímur tók mestu ástfóstri við og þar dvaldist hann reglulega á sumrin fram eftir ævi. Á sýningunni gefur að líta bæði olíuverk og vatnslitamyndir meistarans frá þessum tíma.
Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum og þar er opið alla daga frá 13:00 til 17:30 og stendur sýningin til 26. ágúst.
VF-mynd: elg - Frá opnun sýningarinnar í gær.
Fleiri myndir frá opnuninni eru í ljósmyndasafninu hér á vefnum.