Listamenn frá ýmsum heimshornum í Garði
- Opnunarsýningar Ferskra vinda í Garði um helgina
Opnunarsýningar alþjóðlegu listahátíðarinnar Ferskra vinda í Garði verða núna um helgina, laugardag og sunnudag. Á Ferskum vindum koma saman 50 listamenn frá ýmsum löndum. Þeir hafa síðan 15. desember unnið í opnum vinnustofum víða um Garð að listsköpun sinni og fengið innblástur úr umhverfinu og nýtt sér hráefni þaðan. Listahátíðin er haldin annað hvert ár og þetta sú fjórða.
Mireya Samper er listrænn stjórnandi Ferskra vinda og segir hún hátíðina sérstaka að því leyti að listafólkið komi ekki með fyrirfram ákveðnar hugmyndir um hvað það ætli að gera. „Fólk upplifir Ísland, Garð, íslenska menningu og fólkið hér og verður fyrir áhrifum og finnur hugmyndir og efnivið,“ segir hún.
Afraksturinn verður sýndur í tónum, gjörningum og myndum nú um helgina 9. og 10. janúar og um þá næstu, 16. og 17. janúar. Opnun listaveislu Ferskra vinda hefst að Sunnubraut 4 á laugardag klukkan 14:00. Ókeypis leiðsögn um sýningarsvæðin með rútu hefst svo klukkan 15:00. „Á opnunarsýningunum segja listamennirnir frá hugsuninni á bak við listaverkin sem getur verið mjög mikilvægt fyrir fólk sem kannski er ekki mjög vant að skoða myndlist eða hefur ekki lesið mikið um myndlist. Maður heyrir fólk stundum segja að það skilji ekki myndlist en það er ekkert til sem heitir að skilja, maður upplifir hana.“
Listamennirnir hafa dvalið á Garðvangi, þar sem áður var hjúkrunarheimili. Þeir koma meðal annars frá Japan, Frakklandi, Danmörku, Austurríki, Þýskalandi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Ungverjalandi og Íslandi. Listafólkið hefur unnið að list sinni í áhaldahúsinu, samkomuhúsinu, listasal við Sunnubraut, inni í vitunum tveimur og vitavarðahúsinu á Garðskaga. Nánari upplýsingar um Ferska vinda má nálgast á Facebook-síðu hátíðarinnar.

Listsköpun í sýningarsal við Sunnubraut 4 í Garði. Ljósmynd Lucie Jean

Uppsetning á verki í Garðskagavita. Ljósmynd Lucie Jean

Yoshiko Maruyama, listamaður frá Japan, vinnur að verki sem byggir á flekaskilunum. Ljósmynd Lucie Jean

Listaverk í kjallara Vitavarðarhússins á Garðskaga. Ljósmynd Lucie Jean.