Listamannaspjall - Blómahaf
- Elínrós Eyjólfsdóttir segir frá verkum sínum
Elínrós Eyjólfsdóttir mun leiða gesti um sýningu sína í Duus safnahúsum, Blómahaf, næsta sunnudag 25. september klukkan 15. Ásamt henni mun sýningarstjórinn, Gunnhildur Þórðardóttir, fræða gesti um verk og feril Elínrósar. Á sýningunni, sem var opnuð 1. september síðastliðinn, getur að líta málverk, teikningar og skissur, postulín og skartgripi. Verkin eru sum hver mjög stór olíumálverk sem áður voru til sýnis í Hofi á Akureyri fyrr á þessu ári en einnig eru minni verk og landslagsverk.
Myndheimur Elínrósar er draumkenndur en á sama tíma raunsær þar sem myndefnið er málað af mikilli nákvæmni og af raunsæi og virðingu fyrir efninu. Á myndunum lifnar gróðurinn við og hefur áferð hollensku meistaranna. Form og listræn fegurð myndanna hefur mikið gildi og er hægt að skynja lífrænan kraft þeirra. Elínrós hefur tekið þátt í sýningum víða bæði á Íslandi og erlendis, meðal annars í Hofi, í Hafnarborg, Gallerí Horninu, Bretlandi og Bandaríkjunum.
Eftir víðtækt nám í postulínsmálun hóf Elínrós nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands þar sem hún lauk námi úr málaradeild á árinu 1987. Árið 1995 lauk hún meistaranámi í málun frá Skidmore College í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig sótt fjölda námskeiða erlendis og verið í gestavinnustofum. Elínrós er meðlimur í Sambandi íslenskra myndlistarmanna og í Nordiska Akvarellsallskapet.
Sýningin er opin alla daga frá klukkan 12 til 17 og stendur til 6. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Elínrós Eyjólfsdóttir í síma 869 2026 og Valgerður Guðmundsdóttir í síma 864 9190. Einnig eru upplýsingar á vefsíðunum www.elinros.com og á vefsíðu safnsins www.listasafn.reykjanesbaer.is.