Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Listahátíð barna haldin í 3. sinn í Reykjanesbæ
Mánudagur 27. apríl 2009 kl. 09:32

Listahátíð barna haldin í 3. sinn í Reykjanesbæ


Listasafn Reykjanesbæjar hefur í samvinnu við alla 10 leikskóla bæjarins unnið að sérstakri listahátíð barna sem opnuð verður í Duushúsum næstkomandi fimmtudag kl. 10.30. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er VINÁTTA og eru öll verkin tengd henni.  Listahátíð barna er nú haldin í þriðja sinn og hefur farið stækkandi með hverju árinu.  Í ár þurfti t.d. að leggja alla sali Duushúsanna ásamt Frumleikhúsinu undir hátíðina, svo mikill er sköpunarkraftur barnanna í bænum.

Listasmiðjan Vinaland verður starfrækt í Bíósal þar sem íbúum bæjarins  gefst kostur á að skapa heilt samfélag úr leirfígúrum.  Smiðjan verður opin alla hátíðina og foreldrum bent á að opið verður um helgina frá kl. 13 – 17.

Vikuna 4. – 8. maí standa leikskólarnir svo fyrir skemmtidagskrá  í Duushúsum og Frumleikhúsinu tvisvar á dag kl. 10.30 og 13.30 þangað sem allir eru velkomnir.  Nánari upplýsingar um þær uppákomur er að finna vef listasafnsins, reykjanesbaer.is/listasafn og hjá viðkomandi leikskóla.

Listahátíð barna stendur til föstudagsins 8. maí og er öllum opin.
Opnunartími Duushúsa er frá kl. 11.00 – 17.00 virka daga og kl. 13.00 – 17.00 um helgar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024