Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

List án landamæra 2011: Töfrandi tónar og skapandi skúlptúrar
Þriðjudagur 3. maí 2011 kl. 08:28

List án landamæra 2011: Töfrandi tónar og skapandi skúlptúrar


Á laugardaginn kl. 14.00 verður blásið til stórtónleika í Frumleikhúsinu, undir merkjum Listar án landamæra, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta söngdagskrá undir stjórn okkar frábæru listamanna Arnórs Vilbergssonar organista og Jóhanns Smára Sævarssonar óperusöngvara. Á efnisskránni eru m.a. Summertime úr söngleiknum Porgy og Bess, Pie Jesu e. Andrew Lloyd Webber, Páls Óskars syrpa, Maístjarnan, íslensk sönglög o.fl.

Flytjendur koma bæði úr röðum fatlaðra og ófatlaðra auk þess sem kór Keflavíkurkirkju tekur þátt í tónleikunum.

Rétt er að undirstrika að tónleikarnir hefjast kl. 14.00 en ekki kl. 15.00 eins og áður var auglýst.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Meðal annarra dagskrárliða á listahátíðinni List án landamæra eru myndlistarsýningar í verslunarmiðstöðinni Krossmóa (Nettó) og Krossmóa 4, 2. hæð (húsnæði Miðstöðvar Símenntunar o.fl.) sem standa til 8. maí.

Markmið listahátíðarinnar List án landamæra, sem nú er í fullum gangi víða um land, er fjölbreytni, að sjá tækifæri í stað takmarkana. Hátíðin er vettvangur til að koma listsköpun fólks með fötlun á framfæri og síðast en ekki síst að koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks.

Nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á listanlandamaera.blog.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024