Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Lionsmenn úr Njarðvík hjóla til styrktar krabbameinssjúkum börnum
Miðvikudagur 28. júlí 2010 kl. 14:04

Lionsmenn úr Njarðvík hjóla til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Félagar í Lionsklúbbi Njarðvíkur ætla að fara óhefðbundna leið í fjáröflun sinni nú í ágústmánuði. Þá ætla tveir klúbbfélagar að leggja upp í hringferð um landið. Annar þeirra hjólandi en hinn á bíl. Markmiðið er að fara hjólandi hringveginn um Ísland og safna fjármunum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.

Það er Haraldur Hreggviðsson sem ætlar að sjá um að hjóla hringveginn en nafni hans Helgason verður honum til halds og trausts á sérstakri þjónustubifreið með viðgerðarbúnaði fyrir hjólið og hressingu fyrir hjólakappann.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í samtali við Víkurfréttir sögðu þeir félagar að þeir áætluðu 10-13 daga í verkefnið en reynslan af svona hjólaferðum hefur verið sú að menn hafa verið að hjóla um 100 km. á dag en veður hefur mikil áhrif á hraða ferðarinnar.

Stofnuð hefur verið síða á Facebook fyrir verkefnið en hana má finna með því að slá inn leitarorðið „Hjólað til heilla“ á Facebook.com.

Lionsklúbbur Njarðvíkur hefur verið öflugur í að styrkja samfélagsverkefni á Suðurnesjum. Nú safnar klúbburinn á landsvísu fyrir krabbameinssjúk börn. Sem betur fer tekst oft að lækna krabbamein hjá börnum en þau tilvik koma líka að þessi vágestur fellir þá einstaklinga sem hann hittir fyrir og því hefur samfélagið á Suðurnesjum fengið að kynnast á síðustu dögum og vikum.

Þeir sem vilja leggja fjáröflun Lionsklúbbs Njarðvíkur lið geta gert það með því að leggja inn á reikning 1109-05-412828 kt. 440269-6489. Hjólreiðaferðin umhverfis landið hefst þriðjudaginn 10. ágúst nk. og munu Víkurfréttir fylgjast með ferðalaginu á vf.is.