Bygg
Bygg

Mannlíf

Lína langsokkur vinsælasta sögupersónan
Jóhanna tekur við bókagjöf og bókasafnskorti úr höndum Stefaníu Gunnarsdóttur forstöðumanns.
Miðvikudagur 10. september 2014 kl. 09:23

Lína langsokkur vinsælasta sögupersónan

Bókasafnsdagurinn er haldinn hátíðlegur á bókasöfnum landsins 8. september ár hvert, sem er  alþjóðlegur dagur læsis. Á Bókasafni Reykjanesbæjar er lesandi ársins útnefndur og í ár hlaut Jóhanna Helgadóttir þann heiður.

Jóhanna er einn af dyggustu viðskiptavinum safnsins og sérlega dugleg við að kynna börnum bækur og lestur, ekki bara sínum eigin heldur nemendum sínum í grunn- og leikskólum Reykjanesbæjar. Hún sækir einnig upplýsingaþjónustu safnsins, ekki síður fyrir þróunarverkefni sem hún stýrir nú á leikskólanum Hjallatúni og sagðist ánægð með þjónustuna sem hún fengi á safninu. Jóhanna fékk að launum úrval ljóða Jónasar Hallgrímssonar og bókasafnskort sem gildir í ár.

Þá var vakin athygli á þeim sögupersónum sem starfsfólki bókasafna finnst eftirminnilegastar úr skáldverkum og leikritum. Þar var Lína langsokkur atkvæðamest og skyldi engan undra. Starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar bauð upp á konfekt í tilefni dagsins og sýndi myndir af viðburðum og gestum safnsins í gegnum tíðina með myndasýningu á sjónvarpsskjá.


Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfði á Bókasafninu, m.a. prjónað bókaorm og horft á myndir  frá viðburðum og af gestum safnsins af sjónvarpsskjá.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn