Mannlíf

  • Líknandi jólatré hjá Kiwanis
  • Líknandi jólatré hjá Kiwanis
Föstudagur 15. desember 2017 kl. 09:19

Líknandi jólatré hjá Kiwanis

- 600 jólatré bíða nýrra eiganda

Það er fátt sem minnir meira á jólin en greniilmur. Fyrir jólin koma líka fáir aðrir til greina en Kiwanismenn í Keili í Reykjanesbæ þegar kemur að því að kaupa jólatré, hvort sem það er norðmannsþinur, rauðgreni eða íslensk fura.
 
Jólatréssala Kiwanisklúbbsins Keilis er hafin en Kiwanismenn hafa í gegnum áratugina séð Suðurnesjamönnum fyrir lifandi jólatrjám sem þeir annars vegar flytja inn frá Danmörku og einnig selja þeir íslenska furu. Furan var hoggin um síðustu helgi í Þjórsárdal og kom á sölustað Kiwanis núna á þriðjudaginn.
 
Þeir Ingólfur Ingibergsson forseti Keilis og Arnar Ingólfsson tóku galvaskir á móti blaðamanni Víkurfrétta þegar jólatréssalan opnaði. Þeir höfðu nýlokið við, ásamt öðrum Kiwanisfélögum sínum, að stilla upp sýnishornum af trjánum sem eru í ýmsum stærðum á sölusvæðinu sem er í Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ. Fulltrúar frá Velferðarsjóði Suðurnesja og Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ voru komnir til að taka við stuðningi frá Kiwanisklúbbnum Keili. Þarna endurspeglast einmitt tilgangurinn í því að selja Suðurnesjamönnum jólatré. Afraksturinn fer til góðra málefna á Suðurnesjum. Þannig hafa bæði Fjölskylduhjálp og Velferðarsjóður Suðurnesja notið góðs af þessu verkefni Kiwanis síðustu ár. Bæði hafa fjárframlög og gjafabréf á jólatré runnið til þessara aðila. Þá eru Kiwanismenn einnig duglegir að veita fé í ýmiskonar líknarmál og samfélagsverkefni.



 
Þær Þórunn Þórisdóttir frá Velferðarsjóði Suðurnesja og Anna Valdís Jónsdóttir frá Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ tóku við gjafabréfum og þökkuðu Kiwanismönnum stuðninginn um leið og þær stilltu sér upp til myndatöku með þeim Ingólfi Ingibergssyni forseta Keilis og Arnari Ingólfssyni formanni styrktarnefndar.
 
Þær Þórunn og Anna Valdís voru nýfarnar úr húsi þegar Erlingur Hannesson Kiwanismaður mætti í hús. Hann hefur tekið þátt í jólatréssölunni í ófá ár. Erlingur var varla kominn á bakvið afgreiðsluborðið þegar fyrstu viðskiptavinirnir komu í hús. Passlega stórt tré var valið, það sett í net, greitt fyrir og allir ánægðir. „Þessum peningum er vel varið hjá Kiwanismönnum,“ sagði kátur viðskiptavinurinn sem heyrðist þó bölva aðeins þegar jólatrénu var stungið í skottið og það reyndist erfitt að loka.

 
„Ertu ekki búinn að taka myndir af krossunum og greninu?,“ spurði Erlingur blaðamann. Blaðamaður svaraði játandi og hafði nýlokið við að smella myndum af grenikrossum og hugsað að „það verður hausverkur að klippa þetta út í fótósjopp“.
 
Töluverð umræða hefur verið á samfélagsmiðlum síðustu daga um þá staðreynd að Kiwanismenn hafa fengið samkeppni í jólatréssölunni frá nýju Iceland versluninni í bænum. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem klúbburinn fær samkeppni um sölu jólatrjáa. Fyrir mörgum árum ætlaði Hjálparstofnun kirkjunnar að selja tré við Samkaup en þeir félagar rifja upp að svo mörgum trjám var stolið frá þeirri sölu að stofnunin gafst upp og kom til Kiwanismanna og gaf þeim restina af trjánum. Þá ætlaði Húsasmiðjan og Blómaval að hefja sölu jólatrjáa í samkeppni við Kiwanis. Það féll í grýttan jarðveg hjá bæjarbúum og endaði með því að Kiwanismenn fengu aðstöðuna hjá Húsasmiðjunni til að selja sín tré. Þar eru Kiwanismenn í dag og treysta á að geta selt Suðurnesjamönnum um 600 jólatré í ýmsum stærðum nú fyrir jólin.
 
Sölustaðurinn í portinu hjá Húsasmiðjunni á Fitjum er opinn virka daga kl. 17-20 en um helgar er opið kl. 14-20. Allur ágóði rennur til líknarmála á Suðurnesjum.

 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024