Líf og fjör á sumarhátíð Hjallatúns
Það var líf og fjör á sumarhátíð leikskólans Hjallatúns í Reykjanesbæ í gær. Leikskólanemendur, kennarar, foreldrar, systkin og aðrir gestir skemmtu sér við leik og söng. Veðrið skartaði því besta sem það hefur uppá að bjóða um þessar mundir og gestir gæddu sér á veitingum sem voru grillaðar pylsur og safi. Boðið var upp á andlitsmálun, hoppkastala og ýmislegt fleira.
Myndir-VF/Eyþór Sæmunds