Líf og fjör á íþróttadegi Njarðvíkurskóla
	Það var líf og fjör í Njarðvíkurskóla föstudaginn 26. apríl en þá fór fram árlegur íþróttadagur skólans. Íþróttadagurinn fer þannig fram að allir bekkir skólans keppa í ýmsum þrautum. 
	Þrautirnar í ár voru bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Hver bekkur var með sinn lit og setti það skemmtilegan brag á daginn. Í lokin fór fram keppni nemenda í 10. bekk við starfsfólk skólans þar sem drengirnir kepptu við karlkyns starfsmenn í knattspyrnu og stúlkurnar kepptu við kvenkyns starfsmenn í körfubolta.
	Að lokum var íþróttabekkur Njarðvíkurskóla krýndur en það er sá bekkur sem fékk flest stig í keppnum dagsins. Í ár voru það nemendur í 10. ÞBI sem unnu bikarinn góða. 

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				