Líf og fjör á íþróttadegi Njarðvíkurskóla
Það var líf og fjör í Njarðvíkurskóla föstudaginn 21. apríl síðastliðinn en þá fór fram árlegur íþróttadagur skólans. Íþróttadagurinn fer þannig fram að allir bekkir skólans keppa í ýmsum þrautum. Þrautirnar í ár voru bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Hver bekkur var með sinn lit og setti það skemmtilegan brag á daginn. Í lokin fór fram keppni nemenda í 10. bekk við starfsfólk skólans þar sem drengirnir kepptu við karlkyns starfsmenn í knattspyrnu og stúlkurnar kepptu við kvenkyns starfsmenn í körfubolta. Að lokum var íþróttabekkur Njarðvíkurskóla krýndur en það er sá bekkur sem fékk flest stig í keppnum dagsins. Í ár voru það nemendur í 10. EÁJ sem unnu bikarinn góða.