Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Lið Reykjanesbæjar og Kópavogs mætast í Útsvari á föstudag
Miðvikudagur 16. janúar 2019 kl. 09:38

Lið Reykjanesbæjar og Kópavogs mætast í Útsvari á föstudag

Lið Reykjanesbæjar og Kópavogs mæta í síðustu viðureign undanúrslitakeppninnar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga á RUV. Lið Reykjanesbæjar skipa Kristján Jóhannsson, Valgerður Björk Pálsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.  Liðið á góða möguleika á því að komast í úrslitaviðureignina þann 25. janúar. 
 
Liðið hefur staðið sig vel í vetur og unnið tvær viðureignir, á móti Hálendinu og Ísafjarðarbæ. Bæjarbúar eru hvattir til að standa vel við bakið á liðinu og hvetja það til dáða. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með liðinu í sjónvarpssal þurfa að vera mættir í Útvarpshúsið Efstaleiti eigi síðar en klukkan 19:10 föstudagskvöldið 18. janúar.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024