Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Leyndardómur trúarinnar á tónleikaröð í Grindavíkurkirkju
Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 14:53

Leyndardómur trúarinnar á tónleikaröð í Grindavíkurkirkju

Á miðvikudaginn síðasta, öskudag, hófst „Föstutónleikaröðin: Leyndardómur trúarinnar" í Grindavíkurkirkju. Um er að ræða 6 tónleika á miðvikudagskvöldum kl. 20: 17.febrúar, 24. febrúar, 3. mars, 10. mars, 17. mars og 24.mars.


Meðal flytjenda verða: Eyþór Ingi Jónsson, Hörður Áskelsson og Inga Rós Ingólfsdóttir, Guðný Einarsdóttir, Guðmundur Sigurðsson og Gunnar Gunnarsson, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Björn Steinar Sólbergsson.

Áhersla er lögð á að tengja tónlistina við trúarlegt inntak föstutímans með því að flytjendur útskýra tengslin fyrir áheyrendum á auðskiljanlegan hátt. Að auki verður einn passíusálmur Hallgríms Péturssonar tekinn fyrir á hverjum tónleikum.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aðgöngueyrir er 1000 kr. og er innheimtur svo að tónleikaröðin geti staðið undir sér í framtíðinni. Tónleikaröðin hlaut styrk frá Menningarráði Suðurnesja.

Hörður Áskelsson og Inga Rós Ingólfsdóttir munu leika verk eftir Bach, Kirchner og Saint-Saëns, miðvikudagskvöldið 24.febrúar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024