Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Fimmtudagur 11. febrúar 1999 kl. 23:43

LÉTTSVEITAR-TÓNLEIKAR Á ÖSKUDAGINN

Þann 17. febrúar kl. 20:00 mun Léttsveit Tónlistarskólans í Keflavík halda tónleika í Frumleikhúsinu við Vesturbraut. Með Léttsveitinni syngja Birta Rós Sigurjónsdóttir og Jón Marinó Sigurðsson. Sveitin leikur í fyrsta sinn undir stjórn Ólafs Jónssonar en einnig stjórnar Karen Sturlaugsson sveitinni í lögum sem leikin voru í ferð sveitarinnar sem farin var síðasta sumar.Þann 30. maí sl. hélt Léttsveit T.K. í tveggja vikna tónleikaferð til Boston og Bermuda. Dvöldum við í fimm daga í Boston og héldum þar þrenna tónleika. Þar á meðal spiluðum við í skemmtigarði í New Hampshire, þaðan sem við þurftum að flýja undan veðurguðunum þegar óveður skall á. Einnig spilaði sveitin við Faueil Hall Marketplace við frábærar undirtektir. Tímanum var meðal annars eytt í „mollunum” í Boston ásamt því að skoða borgina þangað til við lögðum leið okkar til paradísarinnar Bermuda. Eyjaklasinn Bermuda liggur undan suð-austurströnd Bandaríkjanna og er undir stjórn Breta. Þar búa u.þ.b. 60.000 manns og vegna smæðar eyjarinnar eru takmörk sett á stærðir bíla og því fara margir leiðar sinnar á léttum mótorhjólum. Við leigðum okkur mótorhjól og létum reyna á ökuhæfni okkar í vinstri umferðinni. Á Bermuda var æft við sundlaugina á hótelinu og haldnir voru þrennir tónleikar, m.a. við ráðhúsið í Hamilton, höfuðborg Bermuda, og á karnivali þar í borg. Þar var múgur og margmenni, stór skemmtiferðaskip lágu við höfnina og hefur sveitin aldrei upplifað aðra eins stemningu. Milli þess sem sveitin spilaði, var hver krókur og kimi eyjarinnar skoðaður. Einnig var legið í sólbaði á bleikum ströndum og buslað í sjónum innan um litríka fiska. Eftir sjö sæluríka og unaðslega daga á eyjunni héldum við aftur til Boston þar sem við dvöldum í tvo daga. Lokatónleikar sveitarinnar voru á elliheimili þar í borg. Síðustur dagarnir voru nýttir vel, verslað og endað á Vísindasafninu í Boston. Þann 14. júní fórum við svo úr rigningunni í sólina i Keflavík eftir vel heppnað ferðalag. Viljum við nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem styrktu sveitina til fararinnar. Aðgangur að tónleikunum þann 17. febrúar er ókeypis og vonandi sjá flestir sér fært að mæta og hlusta á Léttsveit Tónlistarskólans í Keflavík. Léttsveit TK.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024