Bygg
Bygg

Mannlíf

Léttleikinn í fyrirrúmi á tónleikum kvennakórsins
Þriðjudagur 12. apríl 2005 kl. 15:44

Léttleikinn í fyrirrúmi á tónleikum kvennakórsins

Kvennakór Suðurnesja hélt tónleika í safnaðarheimili Sandgerðis á sunnudagskvöld. Tónleikarnir voru léttir og skemmtilegir þar sem kórinn söng íslensk og erlend dægurlög og söngleikjatónlist.

Næst á dagskrá kórsins eru tónleikar í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum á sunnudag

Þema þeirra tónleika er söngleikir, en eftir hlé verða eingöngu sungin lög úr þekktum söngleikjum. Fyrir hlé syngur kórinn hinsvegar íslensk dægur- og þjóðlög og ítalskar aríur. Í heild sinni er dagskráin í léttari kantinum.  Stjórnandi er Dagný Þórunn Jónsdóttir og undirleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.  Miðasala á vortónleikana verður við innganginn og er miðaverð kr.1500, en kr. 1000 fyrir eldri borgara. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri.

Tónlistarunnendur eru hvattir til að láta þetta ekki framhjá sér fara, enda koma allir léttir í lund út af þessum tónleikum!

VF-myndir/Þorgils

Bílakjarninn
Bílakjarninn