Lestu meira, lestu betur!
Njarðvíkurskóli hefur unnið markvisst eftir Lestrarstefnu sem unnin var af deildarstjórum skólans frá hausti 2011. Niðurstöður lestrarprófa sýna að þessi vinna hefur skilað betri og skilvirkari árangri í lestri og lesskilningi á milli ára hjá allflestum nemendum.
Samkvæmt stefnunni fá nemendur sem ná ekki markmiðum í lestri einstaklingsáætlun og hefur þeim fækkað verulega á milli ára sem þurfa slíka áætlun. Þessu má þakka markvissri lestrarkennslu, jákvæðum nemendum, samstíga kennarahópi og áhugasömum og hvetjandi foreldrum. Þá hefur nákvæm skráning á árangri og eftirfylgni haft sitt að segja.
Nemendur, kennarar og foreldrar eru afar ánægðir með þann árangur sem hefur áunnist og stefna á að gera enn betur á komandi skólaári.