Bygg
Bygg

Mannlíf

Leoncie gerir það gott í Leigh-on-Sea
Fimmtudagur 2. september 2004 kl. 16:20

Leoncie gerir það gott í Leigh-on-Sea

Söngstjarnan Leoncie gerir víðreist þessa dagana þar sem ný plata er m.a. væntanleg frá henni á næstunni.

Hún var stödd í Englandi fyrir stuttu, nánar tiltekið í bænum Leigh-on-Sea, þar sem hún var við upptökur á nýju myndbandi. Hún vakti mikla athygli fyrir nafn sitt sem hljómar ansi líkt nafni bæjarins (Leoncie/Leigh-on-Sea).

Hún fór m.a. í viðtal á útvarpsstöð í bænum sem kallast Essex FM og er fjallað um komu hennar á heimasíðu stöðvarinnar.

Í viðtalinu kom fram að hún kynni svo vel við sig að hún væri að hugsa um að kaupa sér hús þar og koma sér fyrir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn